Om hårtransplantationer på Svenska About hairtransplantations in English About hairtransplantations in English About hairtransplantations in Icelandic About hairtransplantations in Norweigian
Við endurheimtum hárvöxt með sérsniðnum lausnum fyrir hvern og einn
 
map
Segðu vinum þínum!
Skráðu netfang vinar þíns í eyðuna.
Ilter Clinic er félagi í:

ISHRS

ESHRS    Svenska Läkar Förbundet

Um Ilter Clinic

Ilter Clinic fylgist ekki einungis með nýjustu framförum á sviði hárflutnings heldur er í fararbroddi þökk sé hinni einstöku FUE ILTER-aðferð. Að frátöldum skemmri batatíma er ávinningurinn þéttari staðsetning og eðlilegt útlit. Ilter Clinic er eina læknastofan í heiminum sem beitir FUE ILTER aðferðinni.

Ilter Clinic var fyrsta læknastofan í Evrópu sem bauð upp á háþróaðan hárflutning með því að nota FUE aðferðina.
Læknastofan er staðsett í glæsilegu einbýlishúsi fáeina kílómetra norður af Stokkhólmi með fallegu útsýni yfir hinn rómaða skerjagarð. Þangað er auðvelt að komast bæði úr miðborginni og frá flugvellinum. Við höfum tekið upp samstarf við þekkt hótel sem bjóða heildarlífsstílspakka sem gera heimsóknina til Stokkhólms ógleymanlega.

Dr. Demir Ilter, læknir með 23ja ára reynslu af skurðlækningum, gerir allar aðgerðirnar á Ilter Clinic.

Dr. Ilter er skráður læknir í Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Tyrklandi og Belgíu. Auk þess er hann félagi í International Society of Hair Restoration Surgery og European Society of Hair Restoration Surgery. Dr. Ilter og aðrir fulltrúar Ilter Clinic taka enn fremur reglulega þátt í ráðstefnum og málþingum um víða veröld til að viðhalda forystuhlutverki sínu á sviðinu.

Ókeypis ráðgjöf

Við höfum skilning á því að viðskiptavinum okkur þyki mikilvægt að geta gert sér grein fyrir hæfni okkar og einstakri aðferð fyrir hárflutningsaðgerð og þess vegna er í boði gjaldfrjáls ráðgjöf sem gerir okkur kleift að sýna fram á sérhæfingu okkar, svara spurningum og ræða um mismunandi möguleika sem henta hverjum og einum.

Í ráðgjöfinni getum við kynnst væntanlegum viðskiptavinum okkar og sýnt þeim hvernig FUE ILTER-aðgerðin fer fram í smáatriðum. Við förum enn fremur yfir þá aðferð sem við teljum henta viðkomandi eftir að hafa metið aðstæður hans og möguleika og svörum hugsanlegum spurningum.

Viðskiptavinir okkar njóta óskiptrar athygli okkar meðan á aðgerð stendur. Þeir eru virkir þátttakendur á öllum stigum aðgerðarinnar, allt frá ákvörðun um hárlínu og staðsetningu hársekkja til afþreyingar og máltíða. Við höfum þar að auki látið taka saman leiðarvísi um Stokkhólm til að tryggja að dvöl þeirra hjá okkur verði eins ánægjuleg og þægileg og kostur er.


Hægt er að panta ókeypis ráðgjöf í síma   +46-8-756 00 55 .

personal
Ókeypis ráðgjöf
Hafðu samband og bókaðu ókeypis ráðgjöf varðandi FUE IM.

 

Gautaborg 2 September
Osló 3 September
Helsinki 16 September

 

Hvers vegna FUE IM?
FUE veldur nánast engum sjáanlegum örum eða öðrum lýtum

Stuttur batatími

FUE aðferðin sem ILTER Clinic beitir við hárflutning er minnsta inngrip sem er í boði nú um stundir

FUE aðferð ILTER Clinic skilar eðlilegum árangri því að notast er við líffræðilega rétta stærð af ígræðslum
Hvers vegna Ilter Clinic?
Við gerum aðeins eina aðgerð á dag svo að viðskiptavinurinn nýtur óskoraðrar athygli okkar og trúnaðar

Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 aðgerðir og flutt um það bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa

49% viðskiptavina okkar koma til okkar EFTIR að hafa gengist undir aðgerð hjá öðrum læknastofum

Meira en helmingur viðskiptavina okkar ferðast til okkar að utan

Dr. Demir Ilter, stofnandi og læknir Ilter Clinic, gerir allar aðgerðir sjálfur
Fréttabréf
Skráðu netfangið þitt í eyðuna.
ILTER CLINIC
Djursholmsvägen 14 - 183 56 Täby, Sweden - +46 8 756 00 55 - Fax +46 8 756 00 50 info@ilterclinic.se
Opið mán-fös: 09-17 - Símatími mán-fös: 09-16
RSS Link rss