
Dr. Demir Ilter
Dr. Demir Ilter er stofnandi og skurðlæknir Ilter Clinic. Hann hefur 23ja ára reynslu af skurðlækningum og hefur sjálfur gert allar aðgerðir okkar frá því að læknastofan var opnuð árið 2003.
Áður en hann setti Ilter Clinic á fót vann hann við lýtalækninga- og hjartaskurðdeild Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi.
Hann er upphafsmaður FUE IM aðferðarinnar og einn af fremstu hárflutningssérfræðingum heims.
Rekja má upphafið að stofnun Ilter Clinic aftur til ársins 1988 þegar áhugi hans á lýtalækningum varð til þess að hann hóf störf á lýtalækningadeild Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Fimm árum síðar var honum boðið starf á hinni þekktu hjartaskurðdeild spítalans þar sem hann þróaði frekar færni sína í smásjáraðgerðum.
Áhugi hans á hárflutningi vaknaði í lok ársins 2000 þegar hann fylgdist með starfsfélaga sínum gangast undir hárígræðslu sem misheppnaðist. Eftirgrennslan Dr. Ilters leiddi í ljós nýjar og árangursríkari aðferðir til hárflutnings, aðferðir sem ekki stóðu til boða í Evrópu á þeim tíma en áttu eftir að hafa mikil áhrif á þróunina. Upp frá því hefur Dr. Ilter tekið þátt í fjölmörgum málþingum og ráðstefnum, haldið námskeið og stýrt málstofum um hárflutning ásamt starfsfélögum sínum.
Dr. Ilter er starfandi læknir í Svíþjóð. Hann er félagi í sænskum, belgískum, norskum og íslenskum læknasamtökum og hefur læknisleyfi í öllum löndunum fjórum.
Dr. Ilter er félagi í alþjóðlegum og evrópskum samtökum hárflutningslækna (International Society of Hair Restoration Surgery og European Society of Hair Restoration Surgery). Faglegt eftirlit með starfsemi heilbrigðisstétta er í höndum sænsku heilbrigðisstofnunarinnar (Socialstyrelsen).
Hafðu samband og bókaðu ókeypis ráðgjöf varðandi FUE IM.
•
Stockholm, dagleg ráðgjöf
• Göteborg 19-20 mars
• London
• Oslo
• Reykjavik
• Stuttur batatími
• FUE aðferðin sem ILTER Clinic beitir við hárflutning er minnsta inngrip sem er í boði nú um stundir
• FUE aðferð ILTER Clinic skilar eðlilegum árangri því að notast er við líffræðilega rétta stærð af ígræðslum
• Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 aðgerðir og flutt um það bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa
• 49% viðskiptavina okkar koma til okkar EFTIR að hafa gengist undir aðgerð hjá öðrum læknastofum
• Meira en helmingur viðskiptavina okkar ferðast til okkar að utan
• Dr. Demir Ilter, stofnandi og læknir Ilter Clinic, gerir allar aðgerðir sjálfur










