
Hárlos
Þótt konur og menn missi hár á hverjum degi vekur það sjaldnast eftirtekt því að hárið vex, hvílist og fellur með reglulegu millibili í stöðugri hringrás. Annað er aftur á móti uppi á teningunum þegar erfðir, hormón og aldur trufla hringrásina.
Meðalhærður maður hefur um 120.000 höfuðhár. Lætur nærri að það séu 220 hár á hvern fersentimetra. Vegna vaxtarferils hársins missir fólk á bilinu 50 til 150 hár á dag. Þegar þéttnin verður um 100 hár á fersentimetra verður hárþynningin áberandi og hárlosið í mörgum tilvikum að vandamáli.
Hvað veldur hárlosi?
Erfðir, hormón og aldur eru þrír mikilvægir áhrifavaldar, hver óháður öðrum.
Hárlos orsakast af hormónum og erfðum sem sameinast um það á ákveðnum aldri að ráðast gegn vexti hársekkja. Skallamyndun gengur í erfðir. Sá sem missir hárið hefur fengið tiltekið gen í arf frá að minnsta kosti öðru foreldri sínu. Sömu hormón og valda bólum í húð og skeggvexti geta leitt af sér hárlos.
Karlhormónaskalli eða erfður skalli (androgynous alopecia) er algengastur hjá körlum. Í þeim tilvikum hefur DHT hormónið (dihydrotestesterone) áhrif á erfðafræðilega viðkvæma hársekki sem taka að framleiða þunnt, stutt og stökkt hár með veiku skafti sem getur lognast alveg út af að lokum.
Þessi tegund hármissis einkennist af því að hún leggst á höfuðið ofan ennis og hvirfilinn en miklum mun síður aftan á höfuðið eða hliðar þess svo að hárið þar verður líkast kraga utan um skallann. Þetta hár stenst áhlaup DHT, heldur einkennum sínum og vex áfram þótt það sé flutt á hárlaust svæði.
Hárlos kvenna tengist sömuleiðis erfðum, hormónum og aldri. Með því að skallamyndun hjá konum er mun óalgengari en hjá körlum líða þær oft mjög fyrir hana og búa við verulega skert lífsgæði.
Skallamyndun hjá konum nær oft yfir stærra svæði en hjá körlum og er svolítið dreifðari.
• Gautaborg 2 September
• Osló 3 September
• Helsinki 16 September
• Stuttur batatími
• FUE ađferđin sem ILTER Clinic beitir viđ hárflutning er minnsta inngrip sem er í bođi nú um stundir
• FUE ađferđ ILTER Clinic skilar eđlilegum árangri ţví ađ notast er viđ líffrćđilega rétta stćrđ af ígrćđslum
• Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 ađgerđir og flutt um ţađ bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa
• 49% viđskiptavina okkar koma til okkar EFTIR ađ hafa gengist undir ađgerđ hjá öđrum lćknastofum
• Meira en helmingur viđskiptavina okkar ferđast til okkar ađ utan
• Dr. Demir Ilter, stofnandi og lćknir Ilter Clinic, gerir allar ađgerđir sjálfur








