Om hĺrtransplantationer pĺ Svenska About hairtransplantations in English About hairtransplantations in English About hairtransplantations in Icelandic About hairtransplantations in Norweigian
Viđ endurheimtum hárvöxt međ sérsniđnum lausnum fyrir hvern og einn
 
map
Segđu vinum ţínum!
Skráđu netfang vinar ţíns í eyđuna.
Ilter Clinic er félagi í:

ISHRS

ESHRS    Svenska Läkar Förbundet

Spurningar og svör

Hvað er hárflutningur?

Hárflutningur er listræn endurröðun á hársekkjum sem teknir eru af gjafafleti, til dæmis aftan á höfðinu, og færðir á hárlaus eða þunnhærð svæði. Ný smásjártækni í læknisaðgerðum skilar góðum árangri á þessu sviði og eðlilegu útliti sem takmarkast einungis af „framboði og eftirspurn“. Framboðið er háð fjölda lífvænlegra hársekkja á gjafasvæðinu, þeirra sem frá náttúrunnar hendi er ætlað að duga heila ævi. Eftirspurnin fer eftir óskum um hve stórt svæði á að þekja með ígræddu hári. Í stuttu máli sagt tökum við hársekki á þeim stöðum sem vex meira hár en nauðsynlegt er og flytjum þá þangað sem þeirra er þörf.

Hvað er FUE IM?

Dr. Demir Ilter hefur endurbætt FUE tæknina og þróað FUE ILTER-meðferðina (FUE IM). Í stað þess að nota læknistól sem eru 1 mm í þvermál notar hann tæki sem eru 0,50-0,75 mm. Ávinningurinn er enn styttri batatími og verulega minni líkur á sjáanlegum örum. Þökk sé hinni endurbættu aðferð eru nánast öll hársekkjaknippin fjarlægð úr hársverðinum á gjafasvæðinu áfallalaust og án skemmda. Auk þess leyfir FUE IM þéttari staðsetningu hársekkja í ígræðslufletinum þar sem notuð eru fíngerðustu tæki sem völ er á.

Hver er munurinn á FUE og FUE IM?

Aðferðirnar tvær eru svipaðar enda er FUE IM endurbætt útgáfa af upprunalegu FUE tækninni. Munurinn felst í notkun læknistækja sem eru 0,50–0,75 mm í þvermáli við FUE IM í stað hefðbundinna FUE tóla sem eru 1 mm. Auk þéttari staðsetningar gróa sár og örsmáir skurðir á skemmri tíma eftir FUE IM og hættan á sjáanlegum örum er minni. Hér við bætist að FUE IM fylgir meira og minna fullvissa um að hársekkirnir verði ekki fyrir skemmdum þegar þeir eru teknir upp.

Hver er munurinn á FUE IM og FUT/STRIP?

Í yfirlitinu hér að neðan er munurinn á FUE IM og FUT/STRIP útskýrður.

Aðgerðin

FUT/STRIP-aðferðin hefur verið notuð í mörg ár og felst í því að fjarlægja með skurðaðgerð húðræmu af hærðu svæði aftan á höfðinu (gjafafletinum). Að því loknu er skurðurinn saumaður saman. Húðræmunni af skurðfletinum er skipt niður í hársekkjaklasa í smásjá.

FUE IM er háþróuð aðferð til að fjarlægja einn hársekk í einu án skurðarhnífs og sauma. Með aðstoð sérstakra smásjártóla eru hársekkirnir teknir upp hver fyrir sig úr gjafasvæðinu. FUE ILTER-aðferðin er afar heppileg fyrir þær sakir hve inngripið er lítið.

Hættan á að hársekkir verði fyrir tjóni

FUT/STRIP. Tíu prósent hársekkja eða meira geta orðið fyrir hnjaski af völdum skurðarhnífsins þegar þeir eru fjarlægðir úr gjafasvæðinu eða skipt niður eftir það. Notkun smásjár dregur þó mjög úr hættunni.

FUE IM. Hættan á að hársekkir verði fyrir skemmdum er eins lítil og hugsast getur ef FUE ILTER-aðferðinni er beitt. Læknirinn ákveður skref fyrir skref hvaða einstaka klasa hársekkja hann vill flytja og skaðar ekki nærliggjandi hársekki.

Aðferðir við skurðaðgerðir

FUT/STRIP. Þessi aðferð er umfangsmikil og felur í sér línulegan skurð þvert á taugar og æðar. Í þessu sambandi er mikilvægt að læknirinn hafi reynslu af skurðaðgerðum. Hætta er á að sjúklingurinn missi tilfinningu tímabundið eða varanlega á aðgerðarsvæðinu. Skurðinn verður að sauma saman. Saumarnir eru teknir eftir um það bil tíu daga. Einnig er hætta á öramyndun þótt hárvöxtur hylji það að nokkru leyti.

FUE IM. Við FUE ILTER-aðgerð þarf hvorki að nota skurðarhníf né sauma sem dregur verulega úr allri hættu á öramyndun. Hársekkjaklasarnir eru fjarlægðir með hjálp örsmárra (0,50–0,75 mm) læknistóla. Með því að saumar eru óþarfir finnur sjúklingurinn hvorki til né missir tilfinninguna. Auk þess verður aðgerðarsvæðið meira og minna ómögulegt að greina eftir það.

Eftir aðgerðina

FUT/STRIP. Sjúklingurinn þarf að forðast líkamlega áreynslu í að minnsta kosti 30 daga eftir skurðaðgerð.


FUE IM. Sjúklingurinn getur tekið virkan þátt í íþróttum viku eftir aðgerð.

Gæði hársekkja

FUT/STRIP. Þegar húðræman af gjafafletinum er fjarlægð skemmast mismunandi margir hársekkir vegna þess að aðgerðin er gerð með skurðarhníf.

FUE IM. FUE ILTER-aðferðin skemmir venjulega ekki hársekki meðan á aðgerð stendur.

Talning hársekkja

FUT/STRIP. Fjöldi brottfluttra hársekkja fer að hluta til eftir stærð húðræmunnar sem fjarlægð er og að hluta til eftir þéttni hársins á húðræmunni.

FUE IM. Læknir sem beitir FUE IM-aðferðinni getur ákveðið eftir hendinni hve marga hársekki þarf að flytja til að ná tilætluðum árangri.

Ör

FUT/STRIP. Afleiðing FUT/STRIP-aðgerðarinnar er mjótt ör á gjafasvæðinu. Oftast hylur hár örið. Sé hárið klippt stutt er hætta á að örið sjáist.

FUE IM. FUE IM-aðferðin skilur almennt ekki eftir sig sjáanleg ör, jafnvel þótt viðkomandi sé stuttklipptur. Hársekkirnir eru fluttir hver fyrir sig án notkunar skurðarhnífs.

Batatími

FUT/STRIP. Húðin er hér um bil 12 mánuði að jafna sig eftir FUT/STRIP-aðgerð áður en hægt er að gera nýja aðgerð. Læknirinn þarf að vera viss um að húðin hafi náð fyrri mýkt og teygjanleika áður en hægt er að gera aðra aðgerð.

FUE IM. Læknirinn flytur í samráði við sjúklinginn þann fjölda hársekkja á ígræðslusvæðið sem þurfa þykir. Hægt er að hafa áhrif á fjöldann og staðsetningu meðan á aðgerð stendur. Nýjar aðgerðir má í raun gera án nokkurs millibils.

Hvenær dettur hrúðrið af?

Allt hrúður á sárum dettur af á um það bil 7 til 10 dögum.

Hvenær sér maður endanlegan árangur?

Endanlegur árangur næst venjulega á 7 til 12 mánuðum eftir aðgerð.


Hve lengi „helst“ hárið sem hefur verið flutt?

Hárið, sem flutt er, kemur af gjafasvæði aftan á höfðinu sem ekki er erfðafræðilega viðkvæmt fyrir hárlosi. Það heldur erfðafræðilegum einkennum sínum eftir flutninginn. Flestir halda því „nýja“ hárinu sínu til æviloka.

Hvað þýðir Follicular Units?

Follicular Units aðferðin er ávöxtur 30 ára þróunar á hárflutningi. Aðferðin hefur þróast frá stórum ígræðslum en nú orðið eru notuð eitt, tvö eða þrjú hárstrá úr hverjum náttúrulegum hársekkjaklasa.

Hvað er FUE, Follicular Unit Extraction?

FUE gerir læknum kleift að flytja einstaka hársekkjaklasa án þess að skera ræmu úr húðinni (Strip excision) eða sauma. Hárið er tekið af gjafasvæði, til að mynda aftan af höfðinu, með staðdeyfingu. Hársekkjaklasarnir eru fjarlægðir einn í einu. Skurðlæknirinn gerir örsmáa skurði á ígræðslufletinum og ákveður þéttleika og stefnu fyrir hárið sem verður flutt og grætt þar í hársvörðinn. Loks eru hársekkirnir settir ofan í hina smáu skurði. Ígrætt hárið virðist fullkomlega eðlilegt, sterkt, heilbrigt og glæsilegt og heldur áfram að vaxa.

Hve mörg hárstrá eru flutt í hverri FUE IM-aðgerð?

Venjulega flytjum við frá 500 til 3000 hársekkjaklösum á dag, u.þ.b. 1000-6000 hárstrá.

Gerir Dr. Demir Ilter skurðina í ígræðsluflötinn?

Já - og Dr. Ilter er mjög nákvæmur þegar hann ákveður þéttleika og horn og stefnu hinna örsmáu skurða.

Mun ég kenna til?

Aðgerðin er allan tímann gerð með staðdeyfingu. Fæstir finna fyrir óþægindum, hvort heldur er meðan á hárflutningnum stendur eða eftir hann. Viðkomandi getur fengið verkjalyf eftir aðgerðina. Þess gerist þó sjaldnast þörf.

Hvað kostar aðgerðin?

Kostnaðurinn fer eftir umfangi aðgerðarinnar. Kostnaðarupplýsingar eru gefnar í ókeypis ráðgjöf hjá Ilter Clinic.

Hver er munurinn á aðgerðinni hjá Ilter Clinic og öðrum aðgerðum?

Við fjöllum aðeins um okkar eigin aðferð, FUE IM. Við teljum mikilvægt að inngripið sé sem minnst en árangurinn sem mestur og eðlilegastur. Við sníðum hverja aðgerð að þörfum og óskum viðskiptavina okkar.

Koma ör?

Þegar skurður grær myndast ör, það er aðferð húðarinnar til að loka sárum. FUT/STRIP-aðferðin skilur alltaf eftir sig meira eða minna sjáanlegt ör á skurðfletinum. Öramyndun vegna FUE er hins vegar nánast engin.

Hve áhrifaríkt er Regaine eða Propecia?

Framleiðendur bæði Regaine (Rogaine) og Propecia segja að lyf þeirra hafi lítil áhrif á hárlínuna ofan ennis, sem er það svæði sem hefur mesta þýðingu fyrir flesta viðskiptavini okkar. Sumum finnst lyfin hamla hárlosi.

Hvers vegna virðist hárflutningur ekki alltaf vera náttúrulegur?

Finnist þér nýlegur hárflutningur óeðlilegur er ástæðan slök framkvæmd. Í flestum tilvikum er ómögulegt að greina hárflutning sem við höfum gert.

Er hætta á sýkingu við hárflutning?

Sýkingar vegna hárflutnings eru sjaldgæfar. Komi upp sýking er venjulega auðvelt að meðhöndla hana með fúkalyfjum sem við eða annar læknir getur ávísað. Fram að þessu liggja engar upplýsingar fyrir um sýkingu eftir meira en 960 FUE IM aðgerðir.

Hve mörg hár þarf til að þekja tiltekið svæði?

Ómögulegt er að svara þessu nema með því að skoða viðkomandi því að nauðsynlegur fjöldi hárstráa fer eftir gerð hársins og gæðum. Dökkt og strítt hár krefst færri hárstráa en ljóst og þunnt til að þekja sama svæði. Enn fremur þarf að hafa hliðsjón af óskum um þéttleika.

Gerir dr. Demir Ilter hárflutningsaðgerðir á konum?

Já. Hárlos kvenna er nokkuð algengt. Rannsóknir sýna að u.þ.b. 50% kvenna yfir 50 ára aldri missa hár. Yfirleitt er gjafasvæði kvenna sama og hjá mönnum, þ.e.a.s. aftan á höfðinu.

Lagfærir dr. Demir Ilter misheppnaðan hárflutning?

Já. FUE IM-aðferðin er afbragðsgóð þegar bæta á misheppnaðan hárflutning. Hver endurígræðsla byggist á eigin forsendum sem við förum yfir með viðskiptavinum okkar í ókeypis ráðgjöf. Vinsamlegast athugið að endurbætur útheimta venjulega meira en eina aðgerð.

Hvað þarf að líða langur tími á milli meðferða?

Tólf mánuðir milli FUT/STRIP-aðgerða. Halda má FUE IM-aðgerð áfram þegar daginn eftir.

personal
Ókeypis ráđgjöf
Hafđu samband og bókađu ókeypis ráđgjöf varđandi FUE IM.

 

Gautaborg 2 September
Osló 3 September
Helsinki 16 September

 

Hvers vegna FUE IM?
FUE veldur nánast engum sjáanlegum örum eđa öđrum lýtum

Stuttur batatími

FUE ađferđin sem ILTER Clinic beitir viđ hárflutning er minnsta inngrip sem er í bođi nú um stundir

FUE ađferđ ILTER Clinic skilar eđlilegum árangri ţví ađ notast er viđ líffrćđilega rétta stćrđ af ígrćđslum
Hvers vegna Ilter Clinic?
Viđ gerum ađeins eina ađgerđ á dag svo ađ viđskiptavinurinn nýtur óskorađrar athygli okkar og trúnađar

Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 ađgerđir og flutt um ţađ bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa

49% viđskiptavina okkar koma til okkar EFTIR ađ hafa gengist undir ađgerđ hjá öđrum lćknastofum

Meira en helmingur viđskiptavina okkar ferđast til okkar ađ utan

Dr. Demir Ilter, stofnandi og lćknir Ilter Clinic, gerir allar ađgerđir sjálfur
Fréttabréf
Skráđu netfangiđ ţitt í eyđuna.
ILTER CLINIC
Djursholmsvägen 14 - 183 56 Täby, Sweden - +46 8 756 00 55 - Fax +46 8 756 00 50 info@ilterclinic.se
Opiđ mán-fös: 09-17 - Símatími mán-fös: 09-16
RSS Link rss