
Lagfæringar
Ólíkt FUE aðferðinni skilur FUT/Strip aðferðin eftir sig greinilegt línulegt ör þar sem hárið er tekið. Veltur á hæfileikum húðarinnar til að gróa hve þykkt örið verður sem og á færni skurðlæknisins sem gerir aðgerðina.
Ilter Clinic notar FUE IM aðgerðina til að hylja stór og áberandi ör af völdum annarra hárflutningsaðgerða, slysa, lýtaaðgerða eða annars. Með því að setja niður hársekki umhverfis og í örið, þar sem það er hægt, má brjóta upp þráðbeint form þess svo að síður beri á því.
FUE IM er óviðjafnanleg aðferð til að hylja ör á hærðu svæði. Áætlað er að 80% hársekkja grói í sínu nýja umhverfi við þessar aðstæður. Er hugsanlegt að endurtaka þurfi aðgerðina nokkrum sinnum til að ná fullkomnum árangri.
Lagfæringar við hárlínu
Ilter Clinic er þekkt fyrir lagfæringar á miður heppnuðum hárflutningi á öðrum stofum. Því miður eru slíkar aðgerðir stór hluti af starfsemi okkar. Engu að síður lögum við slík mistök með mikilli ánægju og aðstoðum sjúklinginn við að endurheimta eðlilegt og heilbrigt útlit.
FUE IM aðferðin opnar möguleika á að meðhöndla sjúklinga sem áður var talið vonlaust að gera aðgerð á.
Markmið okkar er að árangur sérhverrar aðgerðar verði eins eðlilegur og lítt áberandi og kostur er. Við sameinum í því skyni listrænt innsæi og fegrandi mótun annars vegar og þekkingu, reynslu og nákvæmni í hárflutningi hins vegar.
Hafa ber í huga að náttúruleg hárlína er aldrei þráðbein. Við gerum okkar besta til að líkja eftir náttúrulegu hári þegar við veljum staðsetningu, stefnu og horn. Fagleg hæfni og listrænir hæfileikar gera okkur kleift að hjálpa fólki sem af einhverjum sökum er óánægt með óeðlilega hárlínu.
Stórar ígræðslur – „dúkkuhár“
Við teljum stórar ígræðslur sem minna á dúkkuhár til miður heppnaðra hárflutninga.
Stóru ígræðslurnar eru kringlóttir húðflipar sem fluttir eru aftan af höfðinu eða hliðum þess og upp á hárlaus svæði ofan ennis og á hvirflinum. Í hverjum flipa eru um 20 hárstrá sem stundum eru settir niður í beinum línum með auðum svæði inn á milli og minna einna helst á dúkkuhár. Árangurinn af STRIP aðgerðum getur einnig minnt á dúkkuhár ef notaðar eru of stórar ígræðslur.
Með FUE IM aðferðinni má færa til hársekki úr hinum stóru ígræðslum til að brjóta upp ónáttúrulegt mynstur, fylla í auðu svæðin og jafnvel auka þéttnina þar sem þarf.
• Gautaborg 11 november
• Osló 12 november
• London 25-26 november
• Stuttur batatími
• FUE aðferðin sem ILTER Clinic beitir við hárflutning er minnsta inngrip sem er í boði nú um stundir
• FUE aðferð ILTER Clinic skilar eðlilegum árangri því að notast er við líffræðilega rétta stærð af ígræðslum
• Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 aðgerðir og flutt um það bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa
• 49% viðskiptavina okkar koma til okkar EFTIR að hafa gengist undir aðgerð hjá öðrum læknastofum
• Meira en helmingur viðskiptavina okkar ferðast til okkar að utan
• Dr. Demir Ilter, stofnandi og læknir Ilter Clinic, gerir allar aðgerðir sjálfur








