Djursholmsvägen 14 - 183 56 Täby - Telefon +46 8 756 00 55

Om hĺrtransplantationer pĺ Svenska About hairtransplantations in English About hairtransplantations in English About hairtransplantations in Icelandic About hairtransplantations in Norweigian
Viđ endurheimtum hárvöxt međ sérsniđnum lausnum fyrir hvern og einn

Ljósmyndir fyrir og eftir ađgerđ

Á þessum ljósmyndum, sem teknar eru fyrir og eftir hárflutningsaðgerðir hjá okkur, má sjá nokkur dæmi um árangurinn.

Före och efter
Före och efter
Före och efter
Före och efter
Före och efter
Skallamyndun ungs manns á háu stigi. Hárþynningin hefur haft slæm áhrif á sjálfsálit viðskiptavinarins. Hann vill líta betur og unglegar út og láta þétta hárið að framan og á hvirflinum umtalsvert.

Dr. Ilter: 2000 hársekkjaknippi þurfti til að endurskapa náttúrulega hárlínu og almenna þéttingu á hárlausu svæðin á höfðinu, einkum að framan. Þessi fjöldi auk hársins sem fyrir var dugði til að ná þeim árangri sem viðskiptavinurinn óskaði eftir. Norwood 4A til Norwood 2 Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter

Þessi viðskiptavinur missti hárið bæði að framan og á hvirflinum. Skallamyndunin að framan veldur honum mestum áhyggjum. Hann saknar þess hvernig hárið rammaði inn andlit hans.

Dr. Ilter: Eins og við leggjum venjulega til óskaði viðskiptavinurinn umfram allt eftir því að við meðhöndluðum hárlínuna og hárlausa svæðið að framan. Hárlos á því svæði hefur einna helst neikvæð áhrif á útlit viðkomandi. Við bjuggum til fína og eðlilega hárlínu sem hæfir andliti viðskiptavinarins vel.

Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter

Dr. Ilter: Takið eftir hve hárið, sem fært var fram, fellur vel að hárinu í hliðunum. Lega, þéttni og vaxtarstefna hársins er náttúruleg og viðskiptavinurinn er mjög ánægður með árangurinn.

Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter
Þessi maður hefur misst hárið að framan. Hann hefur tapað innrömmun andlitsins og líkar ekki það sem hann sér í speglinum. Hann vill endurheimta náttúrulega hárlínu sem hann hafði nokkrum árum áður.

Dr. Ilter: Við náðum þeim árangri sem viðskiptavinurinn stefndi að með því að flytja 2000 hársekkjaeiningar og staðsetja á skynsamlegan og náttúrulegan hátt. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Nærmynd af hárlínunni. Takið eftir hve náttúrulegt hárið er og húðin.

Dr. Ilter: Staðsetning svokallaðra dúnhára fremst í hárlínunni gefur náttúrulegt útlit og er í fullkomnu samræmi við andlitið. Það er nánast ómögulegt að greina að viðskiptavinurinn hafi farið í hárflutningsaðgerð.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur misst hluta af hárlínunni og honum finnst það hafa neikvæð áhrif á útlit sitt og klippingu. Hann er einnig farinn að missa hár á hvirflinum og vill bæta úr því í sömu aðgerð. Hann vill endurheimta upphaflegan hárvöxt og þéttleika sem lítur vel út þótt hann haldi áfram að missa hárið í kring þegar fram í sækir.

Dr. Ilter: Með því að nota eingöngu lítil og stök hár fremst í hárlínuna í réttu horni og vaxtarstefnu var hægt að endurskapa hana í upprunalegri mynd. Í heildina voru 600 ígræðslur fluttar í hárlínuna og 1000 í hvirfilinn. Före och efter

Takið eftir hve eðlileg hárlínan er.

Dr. Ilter: Endursköpun náttúrulegrar hárlínu er með því erfiðasta út frá fagurfræðilegu sjónarmiði sem maður stendur frammi fyrir þegar maður gerir hárflutningsaðgerð. Í þessu tilviki voru 600 ígræðslur fluttar fram í hárlínuna.

Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur misst hár að framan og finnst það hafa neikvæð áhrif á útlit sitt og klippingu. Hann hefur einnig misst hár ofan á höfðinu og vill bæta úr því í sömu aðgerð. Hann vill endurheimta þéttan og eðlilegan hárvöxt sem lítur vel út þótt hann haldi áfram að missa hárið í kring.

Dr. Ilter: Í þeim tilgangi að endurskapa eðlilegan sveip og þéttleika í samræmi við óskir viðskiptavinarins voru 1000 hársekkjaknippi flutt á hárlaus svæði. Före och efter
Frá öðru sjónarhorni.
Före och efter
Viðskiptavinurinn vill endurheimta eðlilega útlítandi hárlínu með þéttu hári og geta skipt um klippingu án þess að við blasi línulegt ör aftan á höfðinu sem er til óprýði.

Dr. Ilter: Þar sem miðjan hefur varðveist er samfella í hárlínunni en kollvikin há og mishverf. Með hliðsjón af þéttleika hársins að öðru leyti þurfti minnst 120 hárstrá á cm2. Til að endurskapa samhverfu í andlitinu og færa fram kollvikin voru fluttir 2000 hársekkjaklasar eða -knippi á hárlaus svæði. Góð þéttni og náttúruleg hárlína náðust með einni aðgerð. Norwood 3 till Norwood 1.
Före och efter
Takið eftir hve þéttleiki hársins er eðlilegur og sveipurinn sem var endurskapaður með aðeins 1700 hársekkjaknippum sem grædd voru í húðina með eðlilegu horni.
Före och efter
Takið eftir hve hárlínan er eðlileg og hárið þétt að framan eftir einungis eina aðgerð þar sem 1200 hársekkjaknippi voru grædd í húðina.
Före och efter
Viðskiptavinurinn, sem er rakari, hefur látið gera á sér tvær strip-aðgerðir en hárið varð allt of þunnt. Viðskiptavinurinn er óánægður með þéttleikann og óeðlilegt útlit og biður um aðstoð við að fá eins þétt hár og kostur er.

Dr. Ilter: Þrátt fyrir að viðskiptavinurinn hafi farið í tvær strip-aðgerðir er árangurinn þunnt hár og ófullnægjandi. Við fluttum 1200 hársekkjaknippi fram í hárlínuna og árangurinn var betri en viðskiptavinurinn þorði að vona.
Före och efter
The client had surgery many years ago for a brain tumor and lost her hair after radiotherapy. She did not suffer from hereditary hair loss and the donor area had normal density. She tried laser treatment for a long time without satisfactory results. When she did not get her hair back she contacted the Ilter Clinic.

Before FUE IM treatment


After treatment


Dr. ILTER:
We transplanted 2,750 grafts from donor areas on the sides and the back of her head. The donor area was dense. The photos show the results after the FUE IM hair transplantation. Small adjustments can be made in the future to further improve the density of her hair.

Före och efter
Þunn og ógreinileg hárlína truflar viðskiptavininn sem sífellt rakar hár sitt af þessari ástæðu. Hann vill fá þétta og náttúrulega hárlínu. Honum finnst kollvikin karlmannleg og vill halda þeim.

Dr. Ilter: Breytt og mishverf hárlína. Til að koma til móts við óskir viðskiptavinarins um náttúrulegt útlit með réttri vaxtarstefnu og horni ásamt þéttleika voru flutt 1500 hársekkjaknippi í einni aðgerð. Norwood 3A till Norwood 2.
Före och efter

Viðskiptavinurinn sættir sig við skalla á hvirflinum en vill að hárið rammi inn andlit sitt sem fyrr með því að mynda náttúrulega hárlínu og þétta hárið að framan. Hann vill geta séð fjölbreyttari greiðslur þegar hann lítur í spegil.

Dr. Ilter: Hárlausa svæðið er nokkuð stórt en með því að meðhöndla hárlínuna með 2500 hársekkjaknippum náðist árangur sem uppfyllir óskir viðskiptavinarins. Norwood 5A till Norwood 3 ásamt hvirfli.

Före och efter
Myndin er tekin frá hlið til að sýna náttúrulega hárlínu sem hægt er að mynda með FUE IM aðgerðinni. Takið eftir hve hárið leggst rétt og vex eðlilega. Före och efter
Nærmynd af aðgerðarsvæðinu. Með FUE IM aðferðinni verður hárið þétt án þess að valda skaða á húðinni. Til að ná þessum árangri voru 2500 hársekkjaknippi færð til í einni og sömu aðgerð.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur misst mikið af hári sínu og vill gjarnan endurheimta hárvöxt sem hæfir aldri hans betur. Hann vill fá eins þéttan hárvöxt og unnt er í einni aðgerð. Honum finnst mikilvægt að geta skipt um greiðslu af og til og kýs því hárflutningsaðferð sem ekki skilur eftir sig áberandi ör þótt hárið sé stutt.

Dr. Ilter: Í því skyni að öðlast að nýju jafnan og samfelldan hárvöxt er mikilvægt að móta skýra og náttúrulega hárlínu og þétta hárið að framan. Þessi árangur næst með því að færa 2000 hársekkjaknippi með skynsamlegum hætti á hárlaus svæði. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er með arfgenga skallamyndun. Hann er á fertugsaldri og vill grípa inn í þróunina. Hann leitast eftir eins náttúrulegri niðurstöðu og unnt er og vill endurheimta upprunalega hárlínu. Hann er ekki viðkvæmur fyrir hárþynningu á hvirflinum en vill gjarnan þétt hár að framan. Hann vill helst ekki þurfa að taka sér frí heldur líða vel eftir aðgerðina og geta snúið strax aftur til vinnu. Viðskiptavinurinn vill því helst að batatíminn sé bæði skammur og sársaukalaus.

Dr. Ilter: Á einum degi fluttum við 2500 hársekkjaknippi og árangurinn varð fullnægjandi að mati viðskiptavinarins.
Före och efter
Sami viðskiptavinur og að ofan. Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter

Annað sjónarhorn. 2.500 hársekkjaeiningar.

Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki strip-aðgerð á annarri læknastofu og árangurinn stóðst ekki væntingar hans. Hann vildi fá jafna og þétta hárlínu sem væri aðlaðandi og náttúruleg.

Dr. Ilter: Í því skyni að þétta hárið og þekja gisna svæðið fluttum við 2000 hársekkjaknippi í einni og sömu aðgerð. Före och efter
2000 ígræðslur. Frá öðru sjónarhorni.
Före och efter
Viðskiptavininum finnst hann ellilegur vegna skallamyndunar. Hann vill endurheimta útlit sem hæfir aldri hans og andliti betur. Hann sækist eftir aðgerð sem er klæðskerasaumuð fyrir hann og mætir þörfum hans. 

Dr. Ilter: Til að fá hámarksþéttni og gera viðskiptavininum kleift að láta klippa sig eins og hann vill, þurfti að flytja 2500 hársekkjaknippi. Före och efter
2500 ígræðslur.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með hve hárið hefur þynnst á undanförnum fimm árum. Hann getur ekki skipt um klippingu eins og hann vill. Viðskiptavinurinn vill fá aftur eins þétt hár og hann hafði á skallasvæðunum án þess að eiga á hættu að fá aukaverkanir.

Dr. Ilter: Við urðum að búa til lægri en eðlileg kollvik og endurskapa þéttleika hársins á hárlausu svæðunum svo að það líktist öðrum hárvexti á höfði mannsins. Þetta var gert með því að flytja 1200 hársekkjaknippi í einni aðgerð. Norwood 3A till Norwood 2.
Före och efter
Viðskiptavinurinn veit að mikið hárlos er algengt í ætt hans. Hann vill þess vegna grípa inn í þá þróun tímanlega. Er þreyttur á raka alltaf hárið vegna gisinna svæða. Viðskiptavinurinn vill endurheimta fyllri hárvöxt.

Dr. Ilter: Þegar við hittum viðskiptavininn var hann um 30 ára og þegar með mikla arfgenga skallamyndun. Hár á gjafasvæðinu var af skornum skammti. Við hófum aðgerðina á því reyna að þétta hárið vel að framan. Árangurinn á myndunum náðist með einni aðgerð og flutningi á 2500 hársekkjaknippum. Norwood 5A till Norwood 2A.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með hárþynninguna sem hann hefur orðið fyrir. Hann er þreyttur á að hafa sömu lengd og klippingu á hárinu allan tímann og vill aukið frelsi og fjölbreytni.

Dr. Ilter: Þétting sem nemur 1000 hársekkjaknippum er nauðsynleg til að þekja gisnu svæðin og skapa heild sem gerir viðskiptavininum kleift að láta klippa sig eins og hann vill. Norwood 3A til Norwood 1.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með þá breytingu sem við honum blasir í speglinum. Hann þekkir ekki sjálfan sig lengur. Hann er 27 ára en þeir sem sjá hann álykta að hann sé miklu eldri. Viðskiptavinurinn vill fá útlit sem samsvarar aldri hans og verður áfram náttúrulegt þótt hárlosið haldi áfram.

Dr. Ilter: Við löguðum hárlínuna og þéttum hárið eins og viðskiptavinurinn óskaði eftir. Með því að færa 1700 hársekkjaknippi fékk viðskiptavinurinn útlit sem hann var afar ánægður með. Norwood 4A til Norwood 2
Före och efter

Viðskiptavinurinn þjáist af skallamyndun á háu stigi. Hann vill öðlast unglegra útlit og geta klippt sig eins og aðrir á hans aldri. Hann sækist eftir eins litlu inngripi og mögulegt er og vill ekki fá ör aftan á höfuðið.

Dr. Ilter: Þar sem hárlausa svæðið var stórt kaus ég að gera tvær aðgerðir. Í fyrri aðgerðinni var byggð upp ný hárlína og hárið þétt að framan með 2000 hársekkjaknippum. Árangurinn af þeirri aðgerð má sjá á ljósmyndinni. Viðskiptavinurinn var mjög ánægður með hárvöxtinn eftir þessa aðgerð og ákvað að fresta þeirri seinni þar til síðar. Norwood 5A til Norwood 2A

Före och efter
Viðskiptavinurinn er með há kollvik og þunnt hár sem hann vill bæta úr með fíngerðum hætti án þess að fórna því að geta haft hárið stuttklippt og því er mikilvægt að árangurinn verði 100% eðlilegur.

Dr. Ilter: Til þess að uppfylla óskir viðskiptavinarins þarf að færa fram kollvikin og þétta hárið í miðjunni að framan. Það krefst flutnings á 1000 hársekkjaknippum til að viðskiptavinurinn geti láti klippa sig eins og hann vill. Frá Norwood 3 til Norwood 2
Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki strip-aðgerð á annarri læknastofu og er afar óánægður með árangurinn af henni. Honum finnst hann hafa verið svikinn þar sem viðkomandi stofa hafði lofað honum meira hári og þéttara fyrir lægra verð. Honum finnst aðgerðin hafa verið misheppnuð og árangurinn fjarri öllum væntingum. Hann vill gangast undir FUE IM eins fljótt og kostur er til að auka þéttleika hársins í kollvikunum og endurheimta sjálfstraustið.

Dr. Ilter: Eftir því sem viðskiptavinurinn segir voru 1500 hársekkjaknippi flutt með strip-aðferðinni. Kollvikin voru meðhöndluð en hárvöxturinn svarar einungis til um 20% af þeim fjölda hársekkja sem græddur var í húðina. 1800 hársekkjaknippi voru flutt til að ná þeim árangri sem viðskiptavinurinn var ánægður með.
Före och efter

Þrátt fyrir ungan aldur hefur viðskiptavinurinn misst töluvert hár. Hann vill endurheimta eins mikið af því og hægt er í einni aðgerð. Hann sækist eftir náttúrulegu útliti, einnig þegar fram líða stundir, og vill ekki hárflutning sem felur í sér svonefnt „dúkkuhársútlit“ eða aðrar undarlegar hliðarverkanir sem hafa í för með sér meiri vandamál en hárlosið sjálft.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur verið með sveip í hárlínunni sem hann vill gjarnan halda. Við endursköpum þéttleikann og jafnvægið sem var í hárvexti hans, þar með talinn sveipinn að framan, með því að flytja 2500 hársekkjaknippi. Norwood 4A till Norwood 2.

Före och efter
Ungur viðskiptavinur sem segist leiður yfir því að hárið hafi tapað fyllingu sinni. Erfitt sé að finna góða greiðslu. Svæðið fyrir aftan toppinn fer mest í taugarnar á honum og svo vill hann lækka kollvikin.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur þunnt  hár en þétt í kringum gisnu svæðin. Aðgerðin krefst 1500 hársekkjaknippa, þar af 500 í hvort kollvik og 500 fyrir aftan toppinn. Ein aðgerð skilaði þeim árangri sem að var stefnt og viðskiptavinurinn gat aftur greitt sér eins og hann vildi.
Före och efter

Þekktur sjónvarpsmaður með hárlos sem fannst skallamyndunin verða áberandi í kastljósunum í sjónvarpsverinu við upptökur. Þar sem þetta olli honum áhyggjum vildi hann þétta hárið á hvirflinum. Hann óskaði eftir eins miklum þéttleika og unnt væri.

Dr. Ilter: Með því að líkja eftir náttúrulegum sveip á hvirflinum og flytja 1800 hársekkjaknippi í einni aðgerð náðist hámarksárangur sem viðskiptavinurinn var mjög ánægður með.

Före och efter
Viðskiptavinurinn hafði haft þunnt hár frá fæðingu sem angraði hann stærstan hluta ævinnar. Það hefti hann félagslega og hann langaði til að öðlast frelsi og geta slakað á án þess að stöðugt hafa áhyggjur af hárinu. Draumur hans var að fá hárvöxt sem lítur vel út „hvernig sem viðrar“.

Dr. Ilter: 1700 ígræðslum var dreift á allt gisna svæðið. Árangurinn eftir aðeins eina aðgerð var stórkostlegur og þótti óþarfi að gera nokkuð frekar.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur tvívegis áður farið í strip-aðgerð á annarri læknastofu. Hann var ekki ánægður eftir fyrstu aðgerðina og var bætt það upp með annarri aðgerð honum að kostnaðarlausu. Árangurinn í seinna skiptið var engu skárri. Hann sóttist eftir náttúrulegri fylllingu og hári sem vex í rétta stefnu og leggst náttúrulega.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur áður látið flytja 3000 hársekkjaknippi á annarri læknastofu. Þrátt fyrir það er árangurinn mjög slæmur. Hárvöxturinn er gisinn og vaxtarstefnan röng. Auk þess er viðskiptavinurinn með stórt og ljótt ör aftan á höfðinu. Við fluttum 1600 ígræðslur upp á hvirfilinn og útbjuggum sveip til að fá náttúrulegt útlit og þekja vel.
Före och efter

Misheppnað permanent olli ofnæmisviðbrögðum og umfangsmiklu hárlosi sem gerði sjálfstraust þessarar konu að engu. Í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga hárlínunni gekkst hún undir tvær strip-aðgerðir og eina svokallaða FUE meðferð á annarri læknastofu. Niðurstaðan varð enn ónáttúrulegra og verra útlit en eftir hið misheppnaða permanent. Viðskiptavinurinn vildi fá eins eðlilegt og þétt hár og kostur var, losna við að hafa topp til að hylja skemmda svæðið og geta breytt klippingu sinni að eigin vali. Hún óskaði þess heitast að geta haft hárið blautt á sólarströnd án þess að þurfa að skammast sín eða að hafa áhyggjur af óeðlilegum hárvexti á höfðinu.

Dr. Ilter: Húðin á aðgerðarsvæðinu var öll í örum og umbreytt, ekki eingöngu vegna permanentsins heldur einnig misheppnaðra aðgerða. Í því skyni að þekja skaddaða og örótta húð ásamt því að skapa eðlilega hárlínu á nýjan leik voru 2000 hársekkjaknippi flutt í tveimur aðgerðum. Ákveðið var að skipta aðgerðinni upp í tvær því að almennt viljum við komast hjá því að raka allt hárið af konum og höldum því eftir síðu hári til að dylja gjafarsvæðið.

Före och efter
Kona með meðfætt hátt enni og kollvik sem hún hefur haft ama af stóran hluta ævi sinnar. Auk þess hefur það heft hana félagslega. Hún sækist eftir kvenlegri hárlínu en vill ekki láta skera sig og sauma.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn er með dæmigert skandinavískt hár sem er þunnt og mjúkt. Með því að græða 1200 hársekkjaknippi á rétta staði, þ.e.a.s. nýta okkur örsmáar ígræðslur, velja rétt horn og vaxtarstefnu, fékk viðskiptavinurinn mjúkan og eðlilegan hárvöxt.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur tiltölulega snemma misst hár aftan við toppinn. Við það minnkaði sjálfstraustið. Hann fór þess vegna í strip-aðgerð og því næst í svonefnda FUE meðferð sem var gerð með hjálp tækis á annarri læknastofu. Aðgerðirnar voru misheppnaðar. Svæðið var gisið, fullt af örum og óeðlilegt á að líta. Viðskiptavinurinn gek því með derhúfu í nokkur ár. Þetta skerti auk þess félagslega færni hans. Hann vill endurheimta náttúrulegt útlit sitt og þétt hár þar sem hann hefur misst það og óskar þess að geta sleppt derhúfunni sem hann ber til að hylja hárið.

Dr. Ilter: Með því að setja niður 1600 hársekkjaknippi í umrætt svæði næst hámarks þéttni sem hylur ójafna og örótta húðina og árangurinn verður eðlilegt útlit.
Före och efter

Viðskiptavinurinn hefur gengist undir tvær strip-meðferðir á annarri læknastofu. Með því að teygjanleiki húðarinnar var orðinn takmarkaður gat læknastofan ekki framkvæmt þriðju strip-aðgerðina á honum. Viðskiptavinurinn vill geta klippt sig aftur eins og áður og endurheimt þéttan og náttúrulegan hárvöxt.  

Dr. Ilter: Við búum til þéttari og náttúrulegan hárvöxt með því að nýta allt gjafasvæðið, báðar hliðar og óskaddað svæði í kringum stórt ör aftan á höfðinu. Við fluttum samtals 2000 hársekkjaknippi í þremur aðgerðum með nokkurra mánaða millibili. Þannig komumst við hjá því að ganga of hart að gjafasvæðinu.

Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur gengist undir strip meðferð. Hann er mjög óánægður með þéttleika hársins og vaxtarstefnuna. Auk þess hefur viðskiptavinurinn fengið ör aftan á höfðinu sem er til lýta. Hann óskar eftir meðferð sem gefur honum náttúrulegt og þétt hár án þess að fá frekari ör eða varanlegar aukaverkanir.

Dr. Ilter: Með því að flytja 2000 hársekkjaknippi og velja hárinu náttúrulega vaxtarstefnu svo að það leggist rétt kringum hárið sem fyrir er má hafa áhrif á það hár og þrýsta því til að leggjast á fallegri og eðlilegri hátt.
Före och efter
Kona á fertugsaldri með argengt hárlos. Hárlosið kemur í veg fyrir að hún geti breytt um klippingu. Það kemur niður á henni félagslega. Nú vill hún grípa til aðgerða og endurheimta hár sem hún einu sinni hafði. 

Dr. Ilter: Eins og alltaf þegar við meðhöndlum konur flytjum við aðeins 1000 hársekkjaknippi í hverri aðgerð til að skerða hárið eins lítið og hægt er. Þar með má hylja gjafasvæðið með hári. Oftast er nóg að flytja 1000 ígræðslur í einni aðgerð til að ná þeim árangri sem konur eru ánægðar með.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er með há kollvik sem hann vill færa fram. Hann vill gjarnan fá unglegri hárvöxt og klippingu. Hann sækist því eftir náttúrulega þéttu hári, þar sem hann hefur misst það, með aðferð sem er sársauka- og hættulaus.

Dr. Ilter: Með því að færa einungis 1200 ígræðslur má færa fram og þétta hár í kollvikunum og líkja eftir náttúrulegum hárvexti.
Före och efter

Viðskiptavinurinn hefur alltaf haft þétt hár en orðið var við þynningu á undanförnum árum á hvirflinum sem fer í taugarnar á honum. Hann vill endurheimta klippingu sem honum finnst gefa sér fallegra og unglegra útlit.

Dr. Ilter: Háþróuð aðferð okkar sem felur í sér staðsetningu á hársekkjaknippum með réttu horni, vaxtarstefnu og mikilli þéttni stuðlar að fullkomlega eðlilegu útliti.

Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur fengið hátt enni í kjölfar hárloss og langaði til að lækka kollvikin. Hann vildi eins lítið inngrip og mögulegt væri svo að hvorki yrðu til áberandi ör né þyrfti að sauma. Hann vildi forðast sársauka og varanlegt tilfinningaleysi eða doða.

Dr. Ilter: Ekkert reynir eins á listrænt auga skurðlæknisins og lækkun kollvika til að útlitið verði eðlilegt. Takið eftir að ekkert bendir til að viðskiptavinurinn hafi farið í hárflutningsaðgerð. Aðeins 300 ígræðslur þurfti til að ná þeim árangri sem að var stefnt.
Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki misheppnaða strip-aðgerð. Hárið er gisið og húðin örótt. Viðskiptavinurinn hefur meiri áhyggjur af hári sínu eftir aðgerðina en fyrir hana. Hann sækist eftir eðlilegri klippingu og hárlínu sem er náttúruleg án þess að hún sé færð framar en orðið er.

Dr. Ilter: Með 2000 hársekkjaknippum var hægt að lagfæra hárvöxtinn svo að klippingin yrði eðlileg og hárið þétt eins og viðskiptavinurinn fór fram á.
Före och efter
Kona leitaði til okkar vegna arfgengrar hárþynningar. Henni fannst skelfilega erfitt að þurfa að verja miklum tíma í að reyna að hylja gisna svæðið. Hana dreymir um að vera laus við að eyða tíma og orku í hárið og fara að einbeita sér að öðru í staðinn. Hana langar í klippingu sem lítur vel út og er auðvelt að eiga við og breyta.

Dr. Ilter: Enn ein konan sem hefur endurheimt greiðslu sem hún er ánægð með. Stór hluti hársins sem er greitt fram er ígræddur, samtals 1000 hársekkjaknippi.
Före och efter
Kona með meðfætt hátt enni sem hefur farið í taugarnar á henni í mörg ár og takmarkar möguleika hennar til að breyta um greiðslu og klippingu. Viðskiptavinurinn vill geta greitt hár sitt aftur og fá kvenlegri og mýrki hárlínu.

Dr. Ilter: Við fluttum 2000 hársekkjaknippi í tveimur aðgerðum til að uppfylla allar óskir viðskiptavinarins.
Före och efter
personal
Ókeypis ráđgjöf

Hafđu samband og bókađu ókeypis ráđgjöf varđandi FUE IM.


Stockholm, dagleg ráðgjöf
Göteborg 23 janúar

London

Oslo
Reykjavik




 

Hvers vegna FUE IM?
FUE veldur nánast engum sjáanlegum örum eđa öđrum lýtum

Stuttur batatími

FUE ađferđin sem ILTER Clinic beitir viđ hárflutning er minnsta inngrip sem er í bođi nú um stundir

FUE ađferđ ILTER Clinic skilar eđlilegum árangri ţví ađ notast er viđ líffrćđilega rétta stćrđ af ígrćđslum
Hvers vegna Ilter Clinic?
Viđ gerum ađeins eina ađgerđ á dag svo ađ viđskiptavinurinn nýtur óskorađrar athygli okkar og trúnađar

Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 ađgerđir og flutt um ţađ bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa

49% viđskiptavina okkar koma til okkar EFTIR ađ hafa gengist undir ađgerđ hjá öđrum lćknastofum

Meira en helmingur viđskiptavina okkar ferđast til okkar ađ utan

Dr. Demir Ilter, stofnandi og lćknir Ilter Clinic, gerir allar ađgerđir sjálfur
Fréttabréf
Skráđu netfangiđ ţitt í eyđuna.
ILTER CLINIC
Djursholmsvägen 14 - 183 56 Täby, Sweden - +46 8 756 00 55 - Fax +46 8 756 00 50 info@ilterclinic.se
Opiđ mán-fös: 09-17 - Símatími mán-fös: 09-16
RSS Link rss