Hvirfillinn
Tilgangurinn með þessari aðgerð er að endurheimta fyrra útlit og klippingu. Einstök aðferð dr. Ilters gerir honum kleift að líkja eftir náttúrulegum sveip á hvirflinum til að endurskapa 100% eðlilegt útlit.


Viðskiptavinurinn hefur misst hár að framan og finnst það hafa neikvæð áhrif á útlit sitt og klippingu. Hann hefur einnig misst hár ofan á höfðinu og vill bæta úr því í sömu aðgerð. Hann vill endurheimta þéttan og eðlilegan hárvöxt sem lítur vel út þótt hann haldi áfram að missa hárið í kring.
Dr. Ilter: Í þeim tilgangi að endurskapa eðlilegan sveip og þéttleika í samræmi við óskir viðskiptavinarins voru 1000 hársekkjaknippi flutt á hárlaus svæði.

Frá öðru sjónarhorni.
Takið eftir hve þéttleiki hársins er eðlilegur og sveipurinn sem var endurskapaður með aðeins 1700 hársekkjaknippum sem grædd voru í húðina með eðlilegu horni.

Þekktur sjónvarpsmaður með hárlos sem fannst skallamyndunin verða áberandi í kastljósunum í sjónvarpsverinu við upptökur. Þar sem þetta olli honum áhyggjum vildi hann þétta hárið á hvirflinum. Hann óskaði eftir eins miklum þéttleika og unnt væri.
Dr. Ilter: Með því að líkja eftir náttúrulegum sveip á hvirflinum og flytja 1800 hársekkjaknippi í einni aðgerð náðist hámarksárangur sem viðskiptavinurinn var mjög ánægður með.

Viðskiptavinurinn hafði haft þunnt hár frá fæðingu sem angraði hann stærstan hluta ævinnar. Það hefti hann félagslega og hann langaði til að öðlast frelsi og geta slakað á án þess að stöðugt hafa áhyggjur af hárinu. Draumur hans var að fá hárvöxt sem lítur vel út „hvernig sem viðrar“.
Dr. Ilter: 1700 ígræðslum var dreift á allt gisna svæðið. Árangurinn eftir aðeins eina aðgerð var stórkostlegur og þótti óþarfi að gera nokkuð frekar.

Viðskiptavinurinn hefur tvívegis áður farið í strip-aðgerð á annarri læknastofu. Hann var ekki ánægður eftir fyrstu aðgerðina og var bætt það upp með annarri aðgerð honum að kostnaðarlausu. Árangurinn í seinna skiptið var engu skárri. Hann sóttist eftir náttúrulegri fylllingu og hári sem vex í rétta stefnu og leggst náttúrulega.
Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur áður látið flytja 3000 hársekkjaknippi á annarri læknastofu. Þrátt fyrir það er árangurinn mjög slæmur. Hárvöxturinn er gisinn og vaxtarstefnan röng. Auk þess er viðskiptavinurinn með stórt og ljótt ör aftan á höfðinu. Við fluttum 1600 ígræðslur upp á hvirfilinn og útbjuggum sveip til að fá náttúrulegt útlit og þekja vel.
Hafđu samband og bókađu ókeypis ráđgjöf varđandi FUE IM.
•
Stockholm, dagleg ráðgjöf
• Göteborg 23 janúar
• London
• Oslo
• Reykjavik
• Stuttur batatími
• FUE ađferđin sem ILTER Clinic beitir viđ hárflutning er minnsta inngrip sem er í bođi nú um stundir
• FUE ađferđ ILTER Clinic skilar eđlilegum árangri ţví ađ notast er viđ líffrćđilega rétta stćrđ af ígrćđslum
• Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 ađgerđir og flutt um ţađ bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa
• 49% viđskiptavina okkar koma til okkar EFTIR ađ hafa gengist undir ađgerđ hjá öđrum lćknastofum
• Meira en helmingur viđskiptavina okkar ferđast til okkar ađ utan
• Dr. Demir Ilter, stofnandi og lćknir Ilter Clinic, gerir allar ađgerđir sjálfur










