Om hĺrtransplantationer pĺ Svenska About hairtransplantations in English About hairtransplantations in English About hairtransplantations in Icelandic About hairtransplantations in Norweigian
Viđ endurheimtum hárvöxt međ sérsniđnum lausnum fyrir hvern og einn
 

Hárlína og kollvik

Hárlos hjá körlum byrjar oftast með því að kollvik hækka og hárið fremst á höfðinu þynnist. Með þessari aðgerð eru hlutföll og samfella ásjónunnar færð í fyrra horf.

Före och efter
Skallamyndun ungs manns á háu stigi. Hárþynningin hefur haft slæm áhrif á sjálfsálit viðskiptavinarins. Hann vill líta betur og unglegar út og láta þétta hárið að framan og á hvirflinum umtalsvert.

Dr. Ilter: 2000 hársekkjaknippi þurfti til að endurskapa náttúrulega hárlínu og almenna þéttingu á hárlausu svæðin á höfðinu, einkum að framan. Þessi fjöldi auk hársins sem fyrir var dugði til að ná þeim árangri sem viðskiptavinurinn óskaði eftir. Norwood 4A til Norwood 2 Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter

Þessi viðskiptavinur missti hárið bæði að framan og á hvirflinum. Skallamyndunin að framan veldur honum mestum áhyggjum. Hann saknar þess hvernig hárið rammaði inn andlit hans.

Dr. Ilter: Eins og við leggjum venjulega til óskaði viðskiptavinurinn umfram allt eftir því að við meðhöndluðum hárlínuna og hárlausa svæðið að framan. Hárlos á því svæði hefur einna helst neikvæð áhrif á útlit viðkomandi. Við bjuggum til fína og eðlilega hárlínu sem hæfir andliti viðskiptavinarins vel.

Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter

Dr. Ilter: Takið eftir hve hárið, sem fært var fram, fellur vel að hárinu í hliðunum. Lega, þéttni og vaxtarstefna hársins er náttúruleg og viðskiptavinurinn er mjög ánægður með árangurinn.

Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter
Þessi maður hefur misst hárið að framan. Hann hefur tapað innrömmun andlitsins og líkar ekki það sem hann sér í speglinum. Hann vill endurheimta náttúrulega hárlínu sem hann hafði nokkrum árum áður.

Dr. Ilter: Við náðum þeim árangri sem viðskiptavinurinn stefndi að með því að flytja 2000 hársekkjaeiningar og staðsetja á skynsamlegan og náttúrulegan hátt. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Nærmynd af hárlínunni. Takið eftir hve náttúrulegt hárið er og húðin.

Dr. Ilter: Staðsetning svokallaðra dúnhára fremst í hárlínunni gefur náttúrulegt útlit og er í fullkomnu samræmi við andlitið. Það er nánast ómögulegt að greina að viðskiptavinurinn hafi farið í hárflutningsaðgerð.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur þjáðst af hárlosi í mörg hár og fundið sig knúinn til að hafa hárið eins stutt og mögulegt er til að skallamyndunin yrði ekki eins áberandi. Viðöskiptavinurinn vill gjarnan geta skipt um klippingu af og til. Hann sækist eftir vægri aðgerð án þess að eiga á hættu að fá aukaverkanir eða ör.

Dr. Ilter: Við græddum 2000 hársekkjaeiningar í hárlausu svæðin á náttúrulegan hátt og árangurinn varð eins og viðskiptavinurinn óskaði. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Takið eftir að ígrædda hárið vex í nákvæmlega sömu stefnu og upprunalega hárið en það má bera saman við óeðlilega vaxtarstefnu (90 gráðu horn) sem maður sér allt of oft eftir hárflutning með öðrum aðferðum.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur misst hluta af hárlínunni og honum finnst það hafa neikvæð áhrif á útlit sitt og klippingu. Hann er einnig farinn að missa hár á hvirflinum og vill bæta úr því í sömu aðgerð. Hann vill endurheimta upphaflegan hárvöxt og þéttleika sem lítur vel út þótt hann haldi áfram að missa hárið í kring þegar fram í sækir.

Dr. Ilter: Með því að nota eingöngu lítil og stök hár fremst í hárlínuna í réttu horni og vaxtarstefnu var hægt að endurskapa hana í upprunalegri mynd. Í heildina voru 600 ígræðslur fluttar í hárlínuna og 1000 í hvirfilinn. Före och efter

Takið eftir hve eðlileg hárlínan er.

Dr. Ilter: Endursköpun náttúrulegrar hárlínu er með því erfiðasta út frá fagurfræðilegu sjónarmiði sem maður stendur frammi fyrir þegar maður gerir hárflutningsaðgerð. Í þessu tilviki voru 600 ígræðslur fluttar fram í hárlínuna.

Före och efter
Viðskiptavinurinn vill endurheimta eðlilega útlítandi hárlínu með þéttu hári og geta skipt um klippingu án þess að við blasi línulegt ör aftan á höfðinu sem er til óprýði.

Dr. Ilter: Þar sem miðjan hefur varðveist er samfella í hárlínunni en kollvikin há og mishverf. Með hliðsjón af þéttleika hársins að öðru leyti þurfti minnst 120 hárstrá á cm2. Til að endurskapa samhverfu í andlitinu og færa fram kollvikin voru fluttir 2000 hársekkjaklasar eða -knippi á hárlaus svæði. Góð þéttni og náttúruleg hárlína náðust með einni aðgerð. Norwood 3 till Norwood 1.
Före och efter
Þunn og ógreinileg hárlína truflar viðskiptavininn sem sífellt rakar hár sitt af þessari ástæðu. Hann vill fá þétta og náttúrulega hárlínu. Honum finnst kollvikin karlmannleg og vill halda þeim.

Dr. Ilter: Breytt og mishverf hárlína. Til að koma til móts við óskir viðskiptavinarins um náttúrulegt útlit með réttri vaxtarstefnu og horni ásamt þéttleika voru flutt 1500 hársekkjaknippi í einni aðgerð. Norwood 3A till Norwood 2.
Före och efter

Viðskiptavinurinn sættir sig við skalla á hvirflinum en vill að hárið rammi inn andlit sitt sem fyrr með því að mynda náttúrulega hárlínu og þétta hárið að framan. Hann vill geta séð fjölbreyttari greiðslur þegar hann lítur í spegil.

Dr. Ilter: Hárlausa svæðið er nokkuð stórt en með því að meðhöndla hárlínuna með 2500 hársekkjaknippum náðist árangur sem uppfyllir óskir viðskiptavinarins. Norwood 5A till Norwood 3 ásamt hvirfli.

Före och efter
Myndin er tekin frá hlið til að sýna náttúrulega hárlínu sem hægt er að mynda með FUE IM aðgerðinni. Takið eftir hve hárið leggst rétt og vex eðlilega. Före och efter
Nærmynd af aðgerðarsvæðinu. Með FUE IM aðferðinni verður hárið þétt án þess að valda skaða á húðinni. Til að ná þessum árangri voru 2500 hársekkjaknippi færð til í einni og sömu aðgerð.
Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur misst mikið af hári sínu og vill gjarnan endurheimta hárvöxt sem hæfir aldri hans betur. Hann vill fá eins þéttan hárvöxt og unnt er í einni aðgerð. Honum finnst mikilvægt að geta skipt um greiðslu af og til og kýs því hárflutningsaðferð sem ekki skilur eftir sig áberandi ör þótt hárið sé stutt.

Dr. Ilter: Í því skyni að öðlast að nýju jafnan og samfelldan hárvöxt er mikilvægt að móta skýra og náttúrulega hárlínu og þétta hárið að framan. Þessi árangur næst með því að færa 2000 hársekkjaknippi með skynsamlegum hætti á hárlaus svæði. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er með arfgenga skallamyndun. Hann er á fertugsaldri og vill grípa inn í þróunina. Hann leitast eftir eins náttúrulegri niðurstöðu og unnt er og vill endurheimta upprunalega hárlínu. Hann er ekki viðkvæmur fyrir hárþynningu á hvirflinum en vill gjarnan þétt hár að framan. Hann vill helst ekki þurfa að taka sér frí heldur líða vel eftir aðgerðina og geta snúið strax aftur til vinnu. Viðskiptavinurinn vill því helst að batatíminn sé bæði skammur og sársaukalaus.

Dr. Ilter: Á einum degi fluttum við 2500 hársekkjaknippi og árangurinn varð fullnægjandi að mati viðskiptavinarins.
Före och efter
Sami viðskiptavinur og að ofan. Annað sjónarhorn. Före och efter
Annað sjónarhorn. Före och efter

Annað sjónarhorn. 2.500 hársekkjaeiningar.

Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki strip-aðgerð á annarri læknastofu og árangurinn stóðst ekki væntingar hans. Hann vildi fá jafna og þétta hárlínu sem væri aðlaðandi og náttúruleg.

Dr. Ilter: Í því skyni að þétta hárið og þekja gisna svæðið fluttum við 2000 hársekkjaknippi í einni og sömu aðgerð. Före och efter
2000 ígræðslur. Frá öðru sjónarhorni.
Före och efter
Viðskiptavininum finnst hann ellilegur vegna skallamyndunar. Hann vill endurheimta útlit sem hæfir aldri hans og andliti betur. Hann sækist eftir aðgerð sem er klæðskerasaumuð fyrir hann og mætir þörfum hans. 

Dr. Ilter: Til að fá hámarksþéttni og gera viðskiptavininum kleift að láta klippa sig eins og hann vill, þurfti að flytja 2500 hársekkjaknippi. Före och efter
2500 ígræðslur.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með hve hárið hefur þynnst á undanförnum fimm árum. Hann getur ekki skipt um klippingu eins og hann vill. Viðskiptavinurinn vill fá aftur eins þétt hár og hann hafði á skallasvæðunum án þess að eiga á hættu að fá aukaverkanir.

Dr. Ilter: Við urðum að búa til lægri en eðlileg kollvik og endurskapa þéttleika hársins á hárlausu svæðunum svo að það líktist öðrum hárvexti á höfði mannsins. Þetta var gert með því að flytja 1200 hársekkjaknippi í einni aðgerð. Norwood 3A till Norwood 2.
Före och efter
Viðskiptavinurinn veit að mikið hárlos er algengt í ætt hans. Hann vill þess vegna grípa inn í þá þróun tímanlega. Er þreyttur á raka alltaf hárið vegna gisinna svæða. Viðskiptavinurinn vill endurheimta fyllri hárvöxt.

Dr. Ilter: Þegar við hittum viðskiptavininn var hann um 30 ára og þegar með mikla arfgenga skallamyndun. Hár á gjafasvæðinu var af skornum skammti. Við hófum aðgerðina á því reyna að þétta hárið vel að framan. Árangurinn á myndunum náðist með einni aðgerð og flutningi á 2500 hársekkjaknippum. Norwood 5A till Norwood 2A.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með hárþynninguna sem hann hefur orðið fyrir. Hann er þreyttur á að hafa sömu lengd og klippingu á hárinu allan tímann og vill aukið frelsi og fjölbreytni.

Dr. Ilter: Þétting sem nemur 1000 hársekkjaknippum er nauðsynleg til að þekja gisnu svæðin og skapa heild sem gerir viðskiptavininum kleift að láta klippa sig eins og hann vill. Norwood 3A til Norwood 1.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er óánægður með þá breytingu sem við honum blasir í speglinum. Hann þekkir ekki sjálfan sig lengur. Hann er 27 ára en þeir sem sjá hann álykta að hann sé miklu eldri. Viðskiptavinurinn vill fá útlit sem samsvarar aldri hans og verður áfram náttúrulegt þótt hárlosið haldi áfram.

Dr. Ilter: Við löguðum hárlínuna og þéttum hárið eins og viðskiptavinurinn óskaði eftir. Með því að færa 1700 hársekkjaknippi fékk viðskiptavinurinn útlit sem hann var afar ánægður með. Norwood 4A til Norwood 2
Före och efter

Viðskiptavinurinn þjáist af skallamyndun á háu stigi. Hann vill öðlast unglegra útlit og geta klippt sig eins og aðrir á hans aldri. Hann sækist eftir eins litlu inngripi og mögulegt er og vill ekki fá ör aftan á höfuðið.

Dr. Ilter: Þar sem hárlausa svæðið var stórt kaus ég að gera tvær aðgerðir. Í fyrri aðgerðinni var byggð upp ný hárlína og hárið þétt að framan með 2000 hársekkjaknippum. Árangurinn af þeirri aðgerð má sjá á ljósmyndinni. Viðskiptavinurinn var mjög ánægður með hárvöxtinn eftir þessa aðgerð og ákvað að fresta þeirri seinni þar til síðar. Norwood 5A til Norwood 2A

Före och efter
Viðskiptavinurinn er með há kollvik og þunnt hár sem hann vill bæta úr með fíngerðum hætti án þess að fórna því að geta haft hárið stuttklippt og því er mikilvægt að árangurinn verði 100% eðlilegur.

Dr. Ilter: Til þess að uppfylla óskir viðskiptavinarins þarf að færa fram kollvikin og þétta hárið í miðjunni að framan. Það krefst flutnings á 1000 hársekkjaknippum til að viðskiptavinurinn geti láti klippa sig eins og hann vill. Frá Norwood 3 til Norwood 2
Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki strip-aðgerð á annarri læknastofu og er afar óánægður með árangurinn af henni. Honum finnst hann hafa verið svikinn þar sem viðkomandi stofa hafði lofað honum meira hári og þéttara fyrir lægra verð. Honum finnst aðgerðin hafa verið misheppnuð og árangurinn fjarri öllum væntingum. Hann vill gangast undir FUE IM eins fljótt og kostur er til að auka þéttleika hársins í kollvikunum og endurheimta sjálfstraustið.

Dr. Ilter: Eftir því sem viðskiptavinurinn segir voru 1500 hársekkjaknippi flutt með strip-aðferðinni. Kollvikin voru meðhöndluð en hárvöxturinn svarar einungis til um 20% af þeim fjölda hársekkja sem græddur var í húðina. 1800 hársekkjaknippi voru flutt til að ná þeim árangri sem viðskiptavinurinn var ánægður með.
Före och efter

Þrátt fyrir ungan aldur hefur viðskiptavinurinn misst töluvert hár. Hann vill endurheimta eins mikið af því og hægt er í einni aðgerð. Hann sækist eftir náttúrulegu útliti, einnig þegar fram líða stundir, og vill ekki hárflutning sem felur í sér svonefnt „dúkkuhársútlit“ eða aðrar undarlegar hliðarverkanir sem hafa í för með sér meiri vandamál en hárlosið sjálft.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur verið með sveip í hárlínunni sem hann vill gjarnan halda. Við endursköpum þéttleikann og jafnvægið sem var í hárvexti hans, þar með talinn sveipinn að framan, með því að flytja 2500 hársekkjaknippi. Norwood 4A till Norwood 2.

Före och efter
Ungur viðskiptavinur sem segist leiður yfir því að hárið hafi tapað fyllingu sinni. Erfitt sé að finna góða greiðslu. Svæðið fyrir aftan toppinn fer mest í taugarnar á honum og svo vill hann lækka kollvikin.

Dr. Ilter: Viðskiptavinurinn hefur þunnt  hár en þétt í kringum gisnu svæðin. Aðgerðin krefst 1500 hársekkjaknippa, þar af 500 í hvort kollvik og 500 fyrir aftan toppinn. Ein aðgerð skilaði þeim árangri sem að var stefnt og viðskiptavinurinn gat aftur greitt sér eins og hann vildi.
Före och efter
Viðskiptavinurinn er með há kollvik sem hann vill færa fram. Hann vill gjarnan fá unglegri hárvöxt og klippingu. Hann sækist því eftir náttúrulega þéttu hári, þar sem hann hefur misst það, með aðferð sem er sársauka- og hættulaus.

Dr. Ilter: Með því að færa einungis 1200 ígræðslur má færa fram og þétta hár í kollvikunum og líkja eftir náttúrulegum hárvexti.
Före och efter

Viðskiptavinurinn hefur alltaf haft þétt hár en orðið var við þynningu á undanförnum árum á hvirflinum sem fer í taugarnar á honum. Hann vill endurheimta klippingu sem honum finnst gefa sér fallegra og unglegra útlit.

Dr. Ilter: Háþróuð aðferð okkar sem felur í sér staðsetningu á hársekkjaknippum með réttu horni, vaxtarstefnu og mikilli þéttni stuðlar að fullkomlega eðlilegu útliti.

Före och efter
Viðskiptavinurinn hefur fengið hátt enni í kjölfar hárloss og langaði til að lækka kollvikin. Hann vildi eins lítið inngrip og mögulegt væri svo að hvorki yrðu til áberandi ör né þyrfti að sauma. Hann vildi forðast sársauka og varanlegt tilfinningaleysi eða doða.

Dr. Ilter: Ekkert reynir eins á listrænt auga skurðlæknisins og lækkun kollvika til að útlitið verði eðlilegt. Takið eftir að ekkert bendir til að viðskiptavinurinn hafi farið í hárflutningsaðgerð. Aðeins 300 ígræðslur þurfti til að ná þeim árangri sem að var stefnt.
Före och efter
Viðskiptavinurinn á að baki misheppnaða strip-aðgerð. Hárið er gisið og húðin örótt. Viðskiptavinurinn hefur meiri áhyggjur af hári sínu eftir aðgerðina en fyrir hana. Hann sækist eftir eðlilegri klippingu og hárlínu sem er náttúruleg án þess að hún sé færð framar en orðið er.

Dr. Ilter: Með 2000 hársekkjaknippum var hægt að lagfæra hárvöxtinn svo að klippingin yrði eðlileg og hárið þétt eins og viðskiptavinurinn fór fram á.
personal
Ókeypis ráđgjöf
Hafđu samband og bókađu ókeypis ráđgjöf varđandi FUE IM.

 

Gautaborg 11 november
Osló 12 november
London 25-26 november

 

Hvers vegna FUE IM?
FUE veldur nánast engum sjáanlegum örum eđa öđrum lýtum

Stuttur batatími

FUE ađferđin sem ILTER Clinic beitir viđ hárflutning er minnsta inngrip sem er í bođi nú um stundir

FUE ađferđ ILTER Clinic skilar eđlilegum árangri ţví ađ notast er viđ líffrćđilega rétta stćrđ af ígrćđslum
Hvers vegna Ilter Clinic?
Viđ gerum ađeins eina ađgerđ á dag svo ađ viđskiptavinurinn nýtur óskorađrar athygli okkar og trúnađar

Dr. Ilter hefur persónulega gert meira en 1000 ađgerđir og flutt um ţađ bil 1,5 milljónir hársekkjaknippa

49% viđskiptavina okkar koma til okkar EFTIR ađ hafa gengist undir ađgerđ hjá öđrum lćknastofum

Meira en helmingur viđskiptavina okkar ferđast til okkar ađ utan

Dr. Demir Ilter, stofnandi og lćknir Ilter Clinic, gerir allar ađgerđir sjálfur
Fréttabréf
Skráđu netfangiđ ţitt í eyđuna.
ILTER CLINIC
Djursholmsvägen 14 - 183 56 Täby, Sweden - +46 8 756 00 55 - Fax +46 8 756 00 50 info@ilterclinic.se
Opiđ mán-fös: 09-17 - Símatími mán-fös: 09-16
RSS Link rss